Pósturinn er með flota af rafknúnum burðarhjólum. Ég setti mig í samband við Guðmund Karl Guðjónsson sem hefur haft umsjón með flotanum til að grennslast fyrir um reynslu Póstsins af þessum tækjum. Burðarhjólin eru frá svissneska fyrirtækinu Kyburz og sérstaklega ætluð í póstburð. Hvert hjól vegur 158 kg en tekur 90 kg af pósti að aftan og 30 kg að framan. Í löggjöfinni flokkast þau sem létt bifhjól, en það er hægt að stilla það í sérstöku viðmóti sem er hýst miðlægt á „skýinu“ hvort hjólin séu í flokki 1 eða 2 — og sömuleiðis fylgjast með staðsetningu og hleðslu tækja. Þetta eykur sveigjanleika flotans þar sem sum hjól innan flotans eru þá leyfð á gang- og hjólastígum ef hámarkshraðinn er stilltur á 25 km/h. Að öðrum kosti er hraðinn settur í 45 km/h, en það er hámarkshraði fyrir flokk 2. Mótorinn er 3,5 kW sem slagar í 4 kW hámarkið fyrir létt bifhjól.
Reykjavík Mobility 2. útgáfa