Reykjavík Mobility 9. útgáfa
Hæ Reykvíkingar,
Gögn um innflutning í maí skiluðu sér og spáin um sölu fyrir árið breyttist töluvert. Núna geri ég ráð fyrir flötu ári í reiðhjólum og 45% söluaukningu á rafhjólum á þessu ári (var bara 36%).
Ég var í Tæknivarpinu og RÚV tók viðtal við mig.
Þessa vikuna fjalla ég um útboð borgarinnar í hjólastöðvarrekstur, skýrslu sem borgin gerði um öryggisupplifun og nýjar rafvespur sem Nova hefur hafið sölu á.
— Jökull Sólberg
Nú er malbikun komin á fullt. Það þarf að endurnýja 6% af slitlagi á hverju ári til að halda götunum í borginni við. Borgin virðist vera að vinna upp slaka síðustu ára. Sýnist 2018 vera metár þar sem gert er ráð fyrir 8,5% endurnýjun á slitlagi á vegum borgarinnar. Að öllu jöfnu virðist þetta vera kostnaður á bilinu 1.100 til 1.300 m. kr. á ári.
Endurnýjun á slitlagi er auðvitað bara brot af kostnaði gatnakerfisins. Við fórnum brjálæðislegu hlutfalli af landi undir kyrrstæða bíla og svo týnist til kostnaður við ýmiskonar girðingar, göngubrýr og göng sem halda fótgangandi frá umferð í öryggisskini. Svo má nefna dempun á hávaða sem dregur annars niður fasteignaverð og eyðileggur rekstrargrundvöll hverfisþjónustu — að ógleymdum þeim lífsgæðum sem tapast við þá hljóðmengun sem ekki tekst að draga úr. Þetta er einhvernveginn endalaus kostnaður sem er ekki hægt að fanga með neinni upptalningu. Kostnaðurinn er allstaðar.
Talað er um kynjagleraugun. Þurfum við að fara að tala um bílagleraugun?
Reykjavíkurborg er sem betur fer að setja u.þ.b. 450 m.kr. á ári í að betrumbæta innviði hjólreiðafólks. Vegagerðin bætir svo í og er í samstarfi með þá stíga sem liggja meðfram stofnbrautum.
Næsta skref að mínu mati er að mýkja verulega 30- og 50km göturnar og hvetja til blandaðrar umferðar þar sem bílar eru ekki í eigin heimi heldur hluti af hægari umhverfi þar sem samneyti er á forsendum gangandi. Lítið dæmi sem ég hef tekið eftir er hvað kantsteinar eru fáránlega háir á Íslandi. Svona varnargarðar eru bara vísbending til ökumanns að það sé óhætt að keyra hraðar. Lækkum þá.
Lærum af þeim bestu:
Innlent
🚎 Stuðningur við Borgarlínuverkefnið er alltaf að aukast. Stuðningsmenn Miðflokksins eru þarna í sérflokki en tæplega þrí af hverjum fjórum þeirra eru beinlínis andvíg þessu verkefni. Kostnaðaráætlun og útfærsla liggur ekki enn fyrir. Link
🚲 Borgin er að leita að rekstraraðila til að sjá um hjólaleigu með stöðvum og hyggst láta eitthvað fjármagn af hendi til að styðja þann rekstur. Borgin leggur til landsvæði undir stöðvar og einkaaðili rekur hjólin og stöðvarnar. Set smá spurningamerki við tímasetningu og skort á upplýsingum í þessari útboðslýsingu. Link
🏘 Yfirvöld hafa brugðist rétt við Airbnb. Reglugerðin um dagafjölda er sanngjörn og eftirlit er að skila sér í sektum og betra skráningarhlutfalli. Þetta þýðir að Airbnb gisting er ekki í beinni samkeppni við hótelin nema fólk sé með tilskilin rekstrarleyfi. Markaðurinn skiptist þá meira hreinlega á milli heilsárs þjónustu hótela og svo blönduðu framboði á álagsmánuðum þegar landsmenn eru hvort eð er í sumarfríum. Link
… BTW, þá er samdráttur á gistinóttum ár frá ári ekki nema 10%.
🤔 Björn Teits bendir á hagsmunatengsl borgarstjórnar sem innleiddi það skipulag sem gerði Reykjavík að bílaborg með breiðum götum. Ljósmyndin sem fylgir er mögnuð. Þarna var módernisminn á fljúgandi ferð og allir sáttir með þessar hugmyndir. Í dag skiljum við betur hverju var fórnað. Link
🇫🇮 Helsinki komin á lista af 10 bestu hjólaborgum heims. Veðrið á Íslandi er engin afsökun. Link
🏍 Rafmótorhjól og rafvespa til sölu hjá NOVA. Kínversk græja. Létt bifhjól í flokki 2 sem þýðir að mótor ýtir tækinu ekki hærra en 45 km hraða. Margir fjarlægja þá „vörn“. Þessi tæki eru í smá „no mans land“ í skipulaginu. Mega ekki vera á hjólastígum en geta ekki flotið með umferð á 60km+ götum. Link
🚴♂️ Reykjavíkurborg lét gera könnun um öryggisupplifun hjólreiðamanna. Ekkert sem vakti sérstakan áhuga hjá mér, en lykilatriðið er að búa til „benchmark“ til að sjá hvernig svör við ákveðnum spurningum þróast meðfram uppbyggingu. Link
Erlent
🇸🇪 Sænsk rannsókn bendir til þess að ferðir með rafhjóli séu í helmingi tilfella að skipta út bílferðum. Svona upplýsingar eru mjög mikilvægar fyrir löggjafann. Þarna er hægt að fara að reikna út ábata af uppbyggingu hjólreiðainnviða. Link
🇬🇧 Guardian með umfjöllun um samanbrjótanlegu Brompton hjólin. Vinsæl í heimalandi sínu Bretlandi. Rafvæðing er komin á fullt hjá þessum framleiðanda eins og öllum öðrum. Link
🛴 Borgaryfirvöld í Denver eru hægt og rólega að leyfa fleiri tæki í örflæðiflotum. Link
📹 Forritari fylgist með bílastæðum fyrir utan skrifstofuna sína. Að sjálfsögðu lætur hann forrit myndgreina svæðið og senda sér skilaboð þegar bílastæði losnar. Bílastæði eru ein stærsta meðgjöf bílaeigenda af hálfu hins opinbera. Link
📰 Sería af veggspjöldum frá þeim tíma þegar Hollendingar börðust gegn einkabílavæðingu. Link
📈 Það er komin smá reynsla á rafhjólið frá General Motors. Ford er líka að vinna í svipuðu konsepti.
🛴 Örflæðifyrirtækið Bird er að prófa sig áfram með örugg svæði sem notendur fá umbun fyrir að skila tækjunum á. Blandað approach, stöðvalausar leigur, en með einhverskonar „hubbum“ til að hlaða og draga úr kostnaði við að týna tækin úr fáförnum götum. Link
🇧🇪 Ansi mögnuð orðræða frá Klaus Frölich, þróunarstjóra BMW. Hann hefur ekki trú á BEV bílum í bili. Mitt take á Twitter. Link
🇨🇳 Kína er að draga úr EV ívilnun og herða útblásturviðmið á nýjar bifreiðar. Búist er við því að framleiðendum fækki og þeir sameinist. Link
BTW: Ekki missa af fréttabréfinu Radical Urbanist.
Myndin
Twitter: @jokull
Áframsendið þetta á hvern sem er – það hjálpar dreifingu og kynningu. Lífið er likes™.
Ekki hika við að svara þessum pósti með athugasemdum, þær berast beint til mín.