Reykjavík Mobility 20. útgafa
Hæ Reykvíkingar (Reykjavíkingar? Höfuðborgarbúar?)
Samgöngusáttmálinn var mikið í umræðunni. Helst er tekist á um fjármögnun ríkisins og útfærslu á veggjöldum. Gísli Marteinn var í útvarpinu og fékk tækifæri til að útskýra betur hvað hann á við með því að sáttmálinn geri of mikið til að fjölga einkabílaferðum og auka umferð. Fókus á örflæði og erlendar fréttir þessa vikuna. Njótið!
kv Jökull Sólberg
Micromobility Europe ráðstefnan var haldin í Berlín í vikunni. Þar hittast stóru leigufyrirtækin, framleiðendur tækja og áhugafólk um örflæði. Forsprakkinn er Horace Dediu og hélt hann opnunarerindi sem var algjör negla.
Horace trúir því að borgir munu í auknum mæli færa ferðir frá bílum á létta rafvædda fararskjóta. Ástæðurnar eru þrjár:
7 milljarðar búa í borg. Því stærri sem borgirnar eru því minna pláss er fyrir bíla. Aðdráttarafl borga eru vinnustaðir og annað fólk. Bíllinn mun flúa borgina undan þrýstingi og kröfu um bætta nýtingu á borgarlandi.
Aðlögun á nýrri tækni veltur á því hvort það þurfi innviði eða ekki. T.d. þurfa flugvélar flugvelli, rafbílar þurfa mun öflugra rafveitukerfi og sjálfkeyrandi bílar munu þurfa breyttar götur. Útbreiðsla örflæðis er og verður áfram hröð vegna þess að borgir eru tilbúnar nú þegar. Innviði eru til staðar: Vegir, 4G og GPS.
Örflæði snýst um frelsi í borg (e. urban freedom). Tæknin er persónuleg og aðlagast þörfum hvers og eins; bæði hvað varðar ferðirnar (last mile, door to door) en líka hvað varðar tækin sjálf sem eru mjög fjölbreytt.
Þetta er mín túlkun á hans fyrirlestri. Vonandi kemur hann á YouTube innan skamms.
Innlent
💸 Stefán Eiríksson hefur notað rafhjól sem bíl númer tvö og deilir útreikningi á sparnaði. Link
🛴 Fjölmargir hafa keypt sér rafskútu til einkanota. Stöð 2 ræðir við eigendur rafskúta og Grétar Þór Ævarsson, verkefnastjóra á samgöngusviði borgarinnar. Grétar talar um kröfu borgarinnar um að hjól fái ákveðna lágmarksnotkun til að réttlæta þessa tilteknu notkun á borgarlandi hjá leigunum. Þetta er úrræði sem margar borgir hafa notað til að takmarka fjölda hjóla og hvetja til þess að tækin séu gæðaleg. Link
🤷🏼♂️ Pétur Urbancic heldur því fram að það sé mýta að það megi sekta fólk fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis. Link
🕳 Hjálmar Sveinsson leggur til að Borgarbókasöfn sinni hluta þeirrar þjónustu sem er bara hægt að nálgast hjá Sýslumanni í dag (í Kópavogi!) Link
Erlent
🔋 Rafmagns strætóar: 300 í US, 384 þúsund í Kína. Link
📈 Hraðast vaxandi fararmáti til vinnu í Bandaríkjunum er … enginn fararmáti (heimaskrifstofa). Link
🔬 Við erum rétt að byrja að skilja áhrif örplasts. Samkvæmt nýrri rannsókn er stærsta uppspretta örplasta bílahjólbarðar. Úff. Link
⚖️ Um ranglætið sem felst í að hið opinbera niðurgreiði bílastæði og vegi. Mjög fróðleg grein með ótal dæmum frá Bandaríkjunum. Í US er náttúrlega ekki verið að innheimta fyrir vegagerð í gegnum eldsneyti og fjöldi bílastæða per bíl er hærri en hér heima. En sambærilega tilfærslur er að finna út um allt í íslenskri stjórnsýslu. Link
🇬🇧 Fyrstu Santander rafhjólin eru komin. Link — … og Donkey Republic Link
🛵 Gogoro frá Taívan er að mínu mati eitt áhugaverðasta örflæðis fyrirtækið. Vespu lúkkið, flottir litir og metnaðarfullt battery swap prógram. Link
🚍 Jákvætt BRT case study frá Richmond. Link
🛴 Rafskútur bannaðar í Prag. Link
📱 Bird Cruiser gæti verið skammt undan. A.m.k. hefur Android appið hjá þeim verið uppfært með tutorial vídjói. Link
💵 … og meira um Bird. Segjast vera með hagnað á „ride level“ og „city level“. Voru að loka risa fjármögnun á 2,5 milljarðar dollara virði. Link
🚲 Hjólareinar hafa jákvæð áhrif á smásölu og hverfisþjónustu. Link
🇩🇪 Þýsk skýrsla á ensku um rafskútur. Frábær samantekt fyrir löggjafa og aðra sem vilja skilja betur rafskúturnar. Sjálfur hef ég meiri trú á öflugri, stærri, þægilegri, öruggari og dýrari tækjum. En vinsældir rafskútunnar opna augu fólks fyrir kostum örflæðis. Link
🇪🇺 Bílaiðnaðurinn er gríðarlega stór hluti af efnahag Evrópu. Link
🗞 Radical Urbanist nr 106 er mjög góður fréttapakki. Link
Twitter: @jokull
Áframsendið á hvern sem er. Ekki hika við að svara þessum pósti með athugasemdum, þær berast beint til mín.