Reykjavík Mobility 12. útgafa
Hæ Reykvíkingar,
Þrjú hjólaslys á skömmum tíma, símasektir og hraðakstur bíla. Vonandi endar þetta ekki í dauðaslysi. Í New York hafa 19 hjólandi látið lífið í umferð það sem af er ári. Reykjavík ber ekki þetta magn hjólreiða með þessu umferðarmagni. Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar er metnaðarfull og það er fjármagn til að bakka hana upp. En hvaða slagur er unnin ef við getum ekki tryggt öryggi þessa fólks? Viljum við að hjólreiðafólk séu eintómir ofurhugar?
kv Jökull Sólberg — einn áhyggjufullur 😟
Loftslagsmálin eru á oddinum. Hitamet eru mölvuð, jöklar hverfa og fólk spyr sig hvað sé til ráðs að taka. Þegar kemur að ábyrgð Íslands er gott að huga að þessari þrískiptingu:
Parísarsáttmálann: Útblástur fyrir utan ETS kerfi (sjá punkt 2) sem á sér stað á Íslandi.
ETS (e. EU Emissions Trading Scheme): Útblástur í iðnaði þar sem fyrirtæki hafa keypt útblástursheimildir. Þarna er álið, kísill og flugsamgöngur — stærstu uppspretturnar hér heima.
Fótspor á innfluttum vörum: Útblástur sem á sér stað fyrir innflutning á vöru fer ekki í Parísarbókhaldið okkar af því útblásturinn á sér stað annarstaðar.
Þegar kemur að skuldbindingum Parísarsáttmálans þá vegur útblástur frá notkun biftækja þungt. Hvað með orkuskipti bílaflota? Átti það ekki að vera nóg? Það er sjálfsagt skref til að draga úr staðbundnum útblæstri. En framleiðsla bíls felur í sér mikinn útblástur og rafbílar enn meiri. Vinnsla á hrávöru sem fer í gatnagerð er orkufrek og henni fylgir gríðarlegur útblástur. Í báðum tilfellum sleppum við með skrekkinn á Íslandi þar sem útblásturinn er kominn á bókhald annara þjóða. Ætlum við að horfa framhjá þessu öllu þegar aðrar samgöngulausnir eru í boði og loftslagið umturnast af mannavöldum?
Fyrir utan skipulagið sem fylgir einkabílaeigu — og öfugt; þ.e.a.s einkabílaþörfin sem fylgir dreifðri byggð. I literally can’t!
Innlent
🏘 Dagur Bollason ritaði vandaða grein í Kjarnann um að lóðabruðli sé hvergi nærri lokið. Link
🛣 Lemúrinn rekur tilurð hraðbrautastefnunnar sem er enn við lýði í Reykjavík. Ljósmyndin af Miklubraut er mögnuð. Link
☠️ Myndband af sturluðum glæfraakstri á Sogavegi. Link
✋🏻 Gísli Marteinn bendir á að götum sem hefur verið lokað fyrir umferð í Reykjavík blómstra. Link
🚌 Upplýsingar um nýja greiðslukerfið sem Strætó vinnur að. Hægt verður að borga með því að skanna kort eða QR kóða og nota einfaldlega snertilaus greiðslukort. Nice. Link
👮🏼♀️ Lögreglan er að sekta fleiri bílstjóra sem nota snjallsíma undir stýri. Það gerist eitthvað við framheilann þegar hann stýrir bíl — hann krumpast eitthvað. Link
💥 Tvisvar ekið á hjólandi á einum degi. Hrós á blaðamann fyrir að tala ekki um að hjól hafi farið í veg fyrir bíl eða e-ð þannig rugl. Link … og þriðja slysið á einni viku … Link
♿️ Svo virðist sem vagnstjórar Strætó séu ekki vel meðvitaðir um skyldur sínar, í þessu tilfelli gagnvart notendum hjólastóla. Gæti þetta haft eitthvað með það að gera að Strætó notar starfsmannaleigur til að manna þessar stöður? Link
🚲 Fyrirtækið City Bike keypti WOW hjólin úr þrotabúi og stefnir á flotarekstur. VB og mbl.is
👴🏼 Þórarinn Hjaltason færir rök fyrir því að við þurfum breiðari hraðbrautir fyrir bíla. Sem betur fer eru engin slík áform uppi nema Vegagerðin fari í algjört stríð við höfuðborgina. Þórarinn er kickin’ it old school. Link
Erlent
⏱ Hvort er betra að vera með stóra vagna á stofnleiðum eða marga litla vagna sem þræða minni götur? Stórir vagnar, hands down. (Færsla frá febrúar 2018) Link
😵 Fleiri Bandaríkjamenn hafa látið lífið í umferð en í báðum heimsstyrjöldum. Link
🛴 Ninebot Segway „the missing manual“ — allskonar tips and hacks fyrir vinsælasta rafhlaupahjólið í dag. Link
🤓 Kitchener Urban Design Manual. Super duper nördadæmi. Mikið af útskýringarmyndum. Link
Twitter: @jokull
Áframsendið þetta á hvern sem er – það hjálpar dreifingu og kynningu.
Ekki hika við að svara þessum pósti með athugasemdum, þær berast beint til mín.